<$BlogRSDURL$>

laugardagur, október 25, 2008

Þetta er náttúrulega bara ótrúlega heimskulega fyndið. Þið verðið að sjá þetta ;) minnir mann óneitanlega á atburð sem skeði í víkinni við flotbryggjuna hér um árið


föstudagur, október 24, 2008

Nýtt lag "gengur ekki neitt" demo..


fimmtudagur, október 23, 2008

Sælir/ar. Komið miðannarfrí en það þýðir að ég er í fríi á morgun og mánudag. Kærkomið frí og hefði verið fínt að smella sér vestur en ég fattaði þetta frí aðeins of seint þannig að það er bara Kef í öllu sínu veldi. Gengið mjög vel í skólanum og náð öllum prófum hingað til, meirað segja stærðfræði en ég hef fokking dúxað í stærfræðinni miðað við fyrri tilraunir. Búin að kára einn áfanga sem ég tók í kvöldskóla en það er tnt102 (tölvur og net)en hann var ekki kenndur í grunndeild raf þegar ég tók hana hérna í den sko ;) Bara mjög skemmtilegt í þessum skóla og get ekki kvartað yfir neinu. Mitt aðaláhugamál síðustu vikurnar er líkamsrækt. Er komin í fantagott form og hef nærri endalausa orku, líkamlega og andlega til þess að takast á við tilveruna. Tónlistin er einnig stórt áhugamál en er í salti eins og stendur enda nóg annað að gera. Daníel litli prinsinn minn er alveg rosa hress, komin með 4 tennur og alles... Er núna eitthvað að kvarta við mömmu sína, held að hann sé orðin þyrstur kasski ;) Fokkin love it mar. Jæja, segið mér eitthvað skemmtilegt, eitthvað fáránlegt, fyndið eða bæði. Kv. Eö

fimmtudagur, október 09, 2008


Spáum aðeins í hagfræði


Ef þið hefðuð lagt 100.000 krónur í að kaupa hlutabréf Nortel fyrir einu ári síðan væri verðmæti bréfanna í dag um 4.900 krónur.??Hefði sama fjárfesting verið lögð í Enron væri sú eign í dag um 1.650 krónur.??Hefðuð þið keypt bréf í World Com fyrir 100.000 krónur væri minna en 500 kall eftir.??Hefði peningurinn hins vegar verið notaður til að kaupa Thule-bjór fyrir einu ári síðan þá hefði verið hægt að drekka hann allan og fara síðan með dósirnar í endurvinnslu og hafa um 21.400 krónur upp úr því. ??Þegar ofangreint er athugað virðist vera vænlegur kostur fyrir fjárfesta að drekka stíft og endurvinna!


Vf.is

þriðjudagur, október 07, 2008

Kvöldið.. Je minn eini. Allt á hvolfi allstaðar, fólk að hamstra vörur í bónus og í gærkveldi voru raðir á bensínstöðum hérna í Kef en ég er bolvíkingur, ég sat bara heima við lærdóminn og tek bensín kasski á morgun eða hinn. Já það er mikill munur á bolvíking og keflvíking, hvað þá reykvíking. Reykvíkingar fíla held ég að hanga í biðröðum. Ef þeir sjá biðröð þá kastast þeir útúr bílnum bara til þess að fá að vera með held ég ;) Ég fer aldrei þangað þar sem biðröð er. Ég sleppi því nánast alltaf nema kasski á flugvöllum og svoleiðis skít. Biðröð á sólon?? þá fer ég bara á mónakó ;) já kreppan er að setja alla á hausinn heyrist mér en staða mín hefur aldrei verið betri þannig séð. Ég er ekki með neitt í einhverjum tilgangslausum sjóðum hingað og þangað enda hef ég alltaf sagt að peningar eru til þess að eyða þeim og það hef ég gert. Mín greiðslubyrði á mánuði er temmileg, bíllinn okkar skuldlaus sem munar örugglega þvílíkt um. Einhverjar tilgangslausar sektir sem vofa yfir manni en maður semur bara um þann skít. Djöfull er ég feginn því að hafa verið í ákveðnu rugli þessi ár en ekki verið að hlaða á mig drasli sem ég stæði uppi með í dag í skítnum... Hverjir eru í ruglinu???? ;) Kv. ykkar heitelskaði

This page is powered by Blogger. Isn't yours?